fimmtudagur, 28. júlí 2011

Öryggi við barnaburð

Núna er ég búin að íslenska greinina um öryggi sem ég setti hér inn um daginn. Ég hef bætt við stuttri málsgrein í lokin: atriði um öndun barnsins sem er mikilvægt að vita.

miðvikudagur, 20. júlí 2011

Manduca

Eftir nokkra umhugsun og stutta prufukeyrslu þökk sé Soffíu, þá ákvað ég að kaupa mér Manduca formaðan burðarpoka um daginn. Það var orðið fyrirséð að ég myndi þurfa aðeins meiri "heavy duty" græju fyrir langar gönguferðir og fleira, þá var ofna sjalið of fyrirferðamikið, BabyHawkinn of fínn og hringasjalið veitti ekki nógu góðan stuðning. Kominn tími á að fjárfesta í formuðum burðarpoka! Þeir eru oft sérhannaðir fyrir langan burð, með góðar axlarólar og mittisólar til að styðja vel við þann sem ber. Ég hafði prófað Beco Butterfly áður - en af ýmsum ástæðum hentaði hann mér ekki.

Þá var fyrrnefnd Soffía tilbúin til að lána mér Manduca pokann sinn til að prófa í smá tíma, þar á meðal í eina góða gönguferð. Ég ákvað nánast strax að fjárfesta í mínum eiginn poka. Elín gaf honum fljótlega A+ einkunn með því að sofna á bakinu á mér, en það var margt fleira sem sannfærði mig.

Fyrst vil ég nefna þægindin. Mittisólin á Manduca er breiðari en gengur og gerist, og veldur því að stuðningurinn við mittið er ótrúlega góður. Barnið er nánast þyngdarlaust! Axlarólarnar eru vel fóðraðar og hafa aldrei valdið mér óþægindum. Ég dreg þá ályktun að pokinn sé þægilegur fyrir barnið líka, þar sem Elín sofnar mjög auðveldlega í honum og er reyndar sofandi á bakinu á mér einmitt meðan ég skrifa þetta. Ólarnar er hægt að stilla á mjög breiðu sviði til að henta öllum líkamsgerðum. Hægt er að hækka og lækka bakið á pokanum með einföldum rennilás, og innbyggðu nýburainnleggi er smellt á sinn stað fyrir yngstu börnin. Það er líka innbyggð hetta sem hægt er að rúlla upp í sérstakan vasa, hún kemur sér mjög vel þegar barnið sofnar. Það tók mig mjög stuttan tíma að læra að gefa brjóst í pokanum, og ég var ansi stolt af því að hafa farið í fjallgöngu fyrst með Elínu framan á mér að drekka, getað síðan sveiflað henni yfir á bakið þar sem hún svaf lungann úr göngunni, sveiflað henni síðan aftur framan á mig og gefið henni aftur að drekka í lok göngunnar. Ansi gott, þó ég segi sjálf frá.

Það finnst einnig strax við fyrsta burð að öryggið er í fyrirrúmi við hönnun pokans. Mittisólin er með þriggja hnappa smellu sem er aðeins hægt að opna með báðum höndum og öryggislykkjur eru við allar smellur. Pokinn sjálfur er úr sterku efni sem er þó ekki stíft, heldur mjúkt og sveigjanlegt. Stutt ól er á milli axlarólanna til að varna því að þær renni til hliðanna.

Þrátt fyrir að vera vel stillanlegur og styðja vel við bæði barn og burðardýr, þá nær Manduca að komast hjá því að vera fyrirferðarmikill eða ófríður. Lykkjur eru til staðar til að halda við langa enda frá smellunum, hönnunin er stílhrein og pokinn er til í fallegum litum.

Ég er hæstánægð með Manduca pokann minn og hlakka til að nota hann mikið næstu 3-4 árin, eða á meðan Elín vill enn láta bera sig. :) Hægt er að kaupa Manduca burðarpoka frá Hönd í Hönd eða Bambus.is. Soffía tekur iðulega með sér Manduca þegar hún er með burðarpokakynningar, þið getið fylgst með Hönd í Hönd eða Pokahorni á Facebook til að vita hvenær næsta kynning verður.

miðvikudagur, 29. júní 2011

Safe Babywearing / Öruggur barnaburður

Hér á eftir koma nokkrir punktar sem vert er að hafa í huga til að gera barnaburð öruggan og þægilegan fyrir alla. Greinin er á ensku í bili, en ég mun þýða hana þegar tími gefst til. Greinin er upprunalega af Pokabörnum, færð hingað með leyfi frá vefstýru.


mánudagur, 13. júní 2011

Garðvinna með barn á bakinu

Núna um helgina kom loksins nógu gott veður til að setja upp litla vermireitinn okkar! Eftir að búið var að gera helstu erfiðisvinnuna fyrir mig(skrúfa saman spýtur, negla reitinn niður og stinga upp grasið) gat ég hent í hann mold og slétt úr henni. En fyrst henti ég litlu rófunni upp á bak í ofna sjalið mitt og setti á hana sólhatt! Við skemmtum okkur vel úti í sólinni, ég rakaði og skottan fylgdist vel með, hæstánægð.

Gardening with mama

Ég hafði séð sjálfa mig í hyllingum með barn á bakinu við garðvinnu síðan vorið fór að láta sjá sig - loksins varð það að veruleika! Yndisleg upplifun. Við erum orðnar nokkuð góðar í að nota ofna sjalið til að bera hana á bakinu, þetta er ansi snúið í fyrstu tilraun en með reglulegri æfingu og þolinmæði verður þetta að ómetanlegum hæfileika. Ég hef hingað til æft mig í svokölluðum "rucksack" burði(hér er myndband), sem er nokkuð einfaldur og fljótlegur. Mér finnst gott að binda sjalið í tíbetskum stíl, þar sem halarnir eru þræddir í gegnum axlaólarnar til að létta álagið á öxlunum.


Núna nálgast 17. júní óðfluga og við hlökkum til að rölta niður í bæ með litlu rófuna í burðarpoka!

fimmtudagur, 9. júní 2011

Babyhawk

Fyrir nokkrum vikum síðan fengum við sendan yndislegan Babyhawk til okkar - mjög fallegan grip sem við höfðum sérpantað af vefsíðu þeirra eftir að ég prófaði sömu græju á burðarpokakynningu sem Soffía sá um í apríl. Við erum núna búin að nota Babyhawkinn okkar reglulega og erum hæstánægð!

Babyhawk!
Fyrsti göngutúrinn í Babyhawkinum!
Babyhawk er svokallaður "mei tai" eða asískur burðarpoki sem hægt er að lesa meira um undir flokknum "Burðargræjur" hér að ofan. Þeir eru saumaðir í Kaliforníu í Bandaríkjunum og fyrirtækið stofnaði móðir sem vildi koma sínum eigin hugmyndum um góða barnaburðargræju í framkvæmd. Á vefsíðu Babyhawk er hægt að velja sér liti og mynstur eftir eigin smekk, sem er stórskemmtilegt en líka svolítið erfitt þar sem úrvalið er gjörsamlega ótrúlegt! Við enduðum á því að velja espresso-litað efni með mynstri sem kallast "hushabye sage", og dúnmjúku espresso-lituðu minky efni á bakhliðinni.

Babyhawkinn er auðveldur í notkun og okkur finnst hann í raun þægilegri en Beco Butterfly pokinn sem við höfðum áður prófað, sem er með smellum en ekki bundinn. Þetta er misjafnt milli fólks, en okkur fannst mei tai stíllinn þægilegri þar sem ekki þarf að stilla lengdir á neinum böndum þegar við skiptumst á að nota pokann. Maður bara bindur nokkra hnúta og fer af stað! Mér hefur fundist nokkuð auðvelt að koma Elínu á bakið á mér, sem mér fannst ansi mikið basl með ofna sjalinu. Auk þess eru böndin þægileg og nokkuð nett, og ekki skemmir fyrir að mynstrið er einstaklega fallegt. Pabbinn er einnig hæstánægður og finnst þægilegt að nota pokann.

Real men do the dishes... 
Svona á að vaska upp! :)
Einmitt núna er litla títlan framan á mér í pokanum. Hún er með örlítinn hita greyið og það er yndislegt að geta gefið henni þá nálægð sem hún þarf núna án þess að fórna handleggjunum alveg. Hægt og rólegt rugg fram og aftur í nokkrar mínútur á meðan ég skrifa færsluna, hún leggur höfuðið upp að mér og lygnir aftur augunum. Ómetanlegt. :)

fimmtudagur, 5. maí 2011

Heimasaumað hringjasjal

Það er tilbúið!


Ég byrjaði á þessu hringjasjali fyrir nokkrum dögum og kláraði það í dag, nokkrum mínútum eftir að hringirnir duttu inn um lúguna frá Bambus.is. Ég er hæstánægð með gripinn og veit að hann verður mikið notaður í framtíðinni! Við fórum í göngutúr út í búð í dag með Elínu í sjalinu og það virkar stórvel.

Það er hafsjór af upplýsingum á netinu um það hvernig er hægt að sauma sín eigin burðarsjöl og -poka. Síðurnar sem ég notaðist við voru leiðbeiningar á heimasíðu Maya Wrap, og á vefsíðunni Sleeping Baby. Efnið er bómullarcanvas, með fjólubláu og hvítu doppóttu skábandi á jöðrunum, allt úr Föndru.


Ég sem hef ekki saumað mikið um ævina átti nokkuð létt með þetta - ef þig langar að prófa að sauma þína eigin burðargræju þá mæli ég með því! Þetta var þrælgaman og lærdómsríkt.

miðvikudagur, 4. maí 2011

Grein: Að snúa fram

Texti eftir Dr. Evelin Kirkilionis

Ég er ekki hlynnt því að börn séu borin í stöðu þar sem þau vísa frá líkamanum. Með þess konar burði er farið á mis við nánast alla kosti burðar, sem snúa að þætti beinagrindarinnar. Börnin eru ekki lengur í þeirri fótastöðu sem kemur í veg fyrir mjaðmalos (Hip dysplasia), en þessi (framvísandi) staða ýtir frekar undir það.